Umhverfisstefna

Umhverfismál eru Rafþekkingu hugleikin og leggjum við okkur fram við að starfa í sátt við umhverfið.

Starfsfólk Rafþekkingar er frætt reglulega um sjálfbærni til að auka skilning, áhuga og þekkingu á umhverfismálum, hvernig við getum minnkað úrgang, dregið úr orku- og vatnsnotkun og flokkað allt sem til fellur á réttan hátt.

Markmið Rafþekkingar er að starfa ávallt samkvæmt lögum og reglum sem gilda um umhverfisvernd og leggja sitt af mörkum til samfélagsins og starfa í sátt við umhverfið. Það er gert með því að leggja áherslu á eftirfarandi:

  • Lágmarka skaðleg umhverfisáhrif við rekstur og innkaup og huga að endurnýtingu og orkusparnaði þar sem það er mögulegt
  • Minni orkunotkun og minni losun skaðlegra lofttegunda og úrgangsefna verði höfð að leiðarljósi við val á bifreiðum og hagræðingu í ferðum á vegum fyrirtækisins.
  • Taka virkan þátt í flokkun endurvinnslu úrgangs.
  • Leita leiða til að draga úr úrgangi og lágmarka efnanotkun.
  • Spilliefnum sé skilað til viðurkenndra aðila.
  • Slökkva ljós og stöðva rafmagnstæki þegar þau eru ekki í notkun.
  • Efla umhverfisvitund starfsfólks.
  • Áhersla skal lögð á að halda umhverfi fyrirtækisins hreinu og snyrtilegu utan dyra sem innan.

Umhverfisstarf skal vera eðlilegur hluti af starfi alls starfsfólks Rafþekkingar. Umhverfisstefna fyrirtækisins skal endurskoðuð reglulega með umbætur í umhverfismálum í huga.